03október

Vikan sem leiđ

Þessi vika er þá senn á enda og vistinni hérna á langford lane á enda ég er nefnilega að flytja í einbýlishús með nokkrum bekkjarfélögum.Þessa vikuna er maður búinn að vera með hugann við bækurnar en maður þarf heldur betur að herða lesturinn fyrir lokaprófin. En já þessi helgi ætla ég að vera niður í London og kíkja áeinhverja tónleika og eitthvað fl. Mummi hlýtur að vera með eitthvað plan.Það er sama sagan með veðrið hérna og heima nema það er ekki snjór hérna það erfarið að kólna svolítið en það á víst að snjóa hérna á morgun svo maður fær smá heimafíling. Annars er ég að pakka núna og er svo að fara út að hlaupa ég maður verður víst að koma sér í form svo er þetta bara svo djöfull gaman búinn að vera svolítð latur þessa vikuna sökum anna. Annars er næsta blogg skrifað á nýja staðnum ég set líka inn myndir af fjölskyldunni hehe og höllinni sem ég kem hér með eftir kalla Hrútahöllina. Hún er staðsett í gömlu Kidlington. mjög skemmtilegt umhverfi og vel staðsett stutt í búð og á barinn reyndar er styttra á barinn en í búðina svo ég held að ég haldi mig bara við það að fara á barinn það er ódýrara en að fara að versla svo er líka svo mikil fylling í bjórnum. Eða allavega hef eg heyrt það frá miklum snillingi!!!! En jæja ég ætla að klára að pakka og fara að hlaupa bless í bili !!
03. október 2008 klukkan 11:11
Sverrir Örn Leifsson
Engin athugasemd
29september

Helgin 18. til 23.

Ég skrapp niður á Heathrow síðasta fimmtudag með fiðrildi í maganum og titraði af spenningi það var ekki að ástæðulausu, ég var nenfnilega að ná í ástina mína hana Ingu. Ég var búinn að ferðast þetta í um 2 tíma héðan úr sveitinni í Kidlington og stóra stundin var að renna upp. Svo loksins þegar ég kom á flugvöllinn smá tími leið þangað til Inga kom í gegnum tollinn svo lá leið okkar til Oxford en stoppuðum stutt þar því við vorum búin að bóka hótel í London yfir helgina. Þegar við komum til London vorum við eins og sannir túrhestar áttavillt og vissum lítið sem ekki neitt um Undergroundið við vissum þó að hótelið var nálægt Waterloo ! það var allt og sumt. Þegar við komum niður á waterloo þá gengum við út á götu og vorum ennþá áttavilltari og vissum ekki hvað var upp né niður svo við ákváðum að labba niður götuna og svo ganga götuna upp aftur og svo þegar við vorum búin að því þá ákváðum við að taka leigubíl en það tók því varla að setjast upp í bílinn, leigubílsstjórinn snéri við og rétt fyrir hornið þá vorum við komin. Við komum okkur fyrir á hótelinu og skelltum okkur svo í London Eye það var farið að rökkva og þegar við vorum að klára hringinn var búið að kveikja upp ljósin í Big Ben. Þegar við höfðum skoðað London úr London eye fórum við á planet Hollywood að borða, þar var sko enginn örbylgju matur eins og maður er búinn að háma í sig síðastliðinn mánuð. á laugardeginum fórum við svo í smá búðarráp en það er einhver della sem ég hef ekki alveg dottið inn í en lét mig hafa það að þræða hverja búðina á fætur annari í nokkra klukkutíma. Ég vildi þó fara í eina búð og við vorum búin að stoppa fullt af fólki og spyrjast fyrir um þessa búð en þetta var Abercrombie and fitch við leituðum og leituðum og loksins fundum við búðina við eiginlega þefuðum hana uppi því annað eins magn af ilmvatni hef ég aldrei séð spreyjað yfir föt og þetta var eiginlega eins og að koma inn á bílasölu langaði í eitthvað af þessu sem var þarna en þorði bara ekki að kíkja á verðmiðann svo við röltum bara einn hring um búðina og drifum okkur út eyðsluklærnar voru búnar að breytast í nenna níska á augabragði. Klukkan var orðin eitthvað um 5 svo við drifum okkur upp á hotel til að hafa fataskipti því  um kvöldið fórum við að sjá Lion king sem var mjög skemmtilegur söngleikur. Eftir söngleikinn  var verslunarleiðangurinn farinn að segja til sín því fæturnir voru algjörlega búnir svo við ákváðum að skella okkur uppá hotel. Á sunnudagsmorguninn drifum við okkur svo til Oxford forum á markað, skoðuðum gömlu byggingarnar og forum svo út að borða um kvöldið. Mánudagurinn var í styttra lagi í skólanum svo við skötuhjúin drifum okkur niður í bæ því það þurfti að ná að skoða og versla eitthvað aðeins meira og við eyðsluklærnar forum í Primark sem er eins og ótrulega búðin. Þessi helgi var vægst sagt yndisleg og er ég nokkuð viss um það að þetta var sú allra besta helgi sem ég hef átt hérna á Englandi. 

                                

29. september 2008 klukkan 18:06
Sverrir Örn Leifsson
2 athugasemdir
14september

4 dagar !!!!!

Þrjár vikur búnar og menn eru á kafi í bókum og hafa lítið sem ekkert að gera eftir skóla nema að lesa, föstudagar eru þó frídagar ég reyndar sveik sjálfan mig aðeins í gær og í dag því ég hef verið frekar latur að líta í bók yfir helgina. Fór í gær í flug með bekkjarfélaga mínum fórum frá smá flugvelli sem er við flugstjórnarsvæði Heatrow en völlurinn heitir Dunham. Við fórum þaðan til Cambridge og Luton á leiðinni til baka mjög skemmtilegt að fá að fljúga hérna en þessi vél sem við fórum á var af tegundinni Cirrus G2 og er bentley einkaflugvélanna 320hp kvikindi. Eftir gott flug fórum við niður London en hann býr í N-London nokkuð nálægt Abbey road svo það var ekkert annað í stöðunni víst maður var kominn þangað nema að fá eina mynd af sér ganga yfir frægustu gangbraut í heimi.Svo lá leiðin í undergroundið helvíti seigur hafði ekki hugmynd um hvernig þetta virkaði og auðvitað tókst mér að taka vitlausa lest komst þó fyrir rest á leiðarenda. Annars er dagurinn búinn að vera ótrúlega rólegur maður er búinn að vera að glápa á einhverja þætti og læra. Svo styttist óðum í að Inga komi til mín og ég hlakka hrikalega mikið til mér hefur reyndar hlakkað til frá því hún keypti miðann í sumar.Við ætlum að eyða helginni niður í London á voða fínu hóteli rétt hjá London eye. Þessi helgi búin og það styttist í næstu helgi!!!
14. september 2008 klukkan 19:45
Sverrir Örn Leifsson
1 athugasemd
27ágúst

Fyrstu 2 skóladagarnir

Já menn eru byrjaðir alvöruna eða leikinn, ég er víst að læra hvernig ég á að leika mér í draumastarfinu, fyrsti dagurinn var frekar stuttur en þá var verið að kynna starfsfólk og Kennara skólans hérna eru bara einhverjir sérvitringar og snillingar. Umsjóna kennarinn sem minnir mig óneitanlega á Ægir nokkurn Sigurðsson er án efa með svipaðann starfsaldur hér og Ægir í FS.En hann er búinn að skrifa einhverjar af þeim bókum sem er verið að stúdera. Annars er ég í 25 manna bekk sem er hersveit af allraþjóða kvikindum frá löndum eins og Singapore, Írland, Íran, Færeyjar,Skotland, Kýpur, Ítalíu, Indlandi Frakklandi og guð má vita restina. Maður gerði náttúrullega eins og Íslendingi sæmir að grúbba sig við eina mannin sem skilur mann, Færeyingnum. Hann hefur búið á Íslandi í einhvern tíma. En þessi ágæti maður heitir því skemmtilega nafni Vilhelm í Skálanum. Annar skóladagurinn var frekar góður en þá var byrjað á því að renna yfir helstu öryggisatriði skólans og helstu flóttaleiðir útúr skólanum, svo núna er ég fær um að flýja héðan ef þess þarf. eftir hádegi kom einn mesti stuðbolti kennarana en hann kennir okkur raffræði og hann er í stuði allann tímann líflegri kennslu hef ég ekki upplifað áður. Svo er maður bara í því að brjóta fatareglurnar. En það var nefnilega þannig að þegar ég var að ganga í skólann í morgun var ég eins og illa gerður hlutur en samt mjög líkur sjálfum mér ég var bara í mínum hversdags fötum gallabuxur strigaskór og peysa ég var þó með bindi en þetta eru reglur sem fólk hefur verið sent heim útaf þetta er víst eins og að koma út á golfvöll. annars eiga fötin mín að koma á morgun ! Ég vona bara að þetta verði ekki eins og þar sem fólki er ætlað að vera í uniformi og fá svo ekki uniform sem þeir hafa mátað... En jæja það er best að ég fari að kíkja í bók  
27. ágúst 2008 klukkan 17:15
Sverrir Örn Leifsson
2 athugasemdir
25ágúst

Krákur hérar og ţjóđin sem lćtur farţegann keyra

Jæja þá er síðasti dagurinn af þessu svokallaða fríi mínu að ljúka skólinn byrjar á morgun og mönnum er óneitanlega farið að hlakka til ég fór í smá göngutúr í gær og í dag um Oxford borg og hverfið hérna í kring. Og búinn að setja inn myndir !
25. ágúst 2008 klukkan 20:54
Sverrir Örn Leifsson
Engin athugasemd
24ágúst

Bjartsýni "Guantanamo-fanga"

Þetta er nú algjörlega nýtt fyrir mér að vera með svona blogg, en ég hef alltaf verið frekar á móti svona bloggum og barnalöndum en hef hinsvegar ekkert á móti útlöndum.!! Eins og stendur nú um mig þá er ég nemi hérna í Kidlington en skólinn byrjar næstkomandi þriðjudag og þá hefst nokkurskonar taxering fyrir það sem koma skal. Ég er búinn að vera hérna í viku bara að slappa af og kynnast umhverfinu, og helstu flóttaleiðum niður í bæ og til London. En fyrstu 2 dagarnir voru frekar skrautlegir en þannig var að ég var búinn að panta heimavist í bæ sem heitir Upper Heyford, eina sem þau sögðu að þetta væru 10 frá skólanum og ég hugsaði með mér æj ég fæ mér bara hjól eða vespu og fer bara þannig í skólann. Svo þegar ég kom að ná í lykilinn af herberginu segir öryggisvörðurinn VEISTU hvert þú ert að fara? Ég kinkaði kolli og hugsaði þetta getur nú ekki verið alslæmt þetta leit þokkalega út á myndunum og þetta á ekki að vera það langt frá. En þá segir hann þetta eru svona 20 mín héðan, ég svitnaði aðeins því ekki ætlaði ég að tæma veskið fyrir einhvern  áttavilltan sand-negra sem var með Bollywood rappið í botni alla leiðina. Þegar Apu loksins fann Upper Hayford þá fyrst hugsaði ég hvar í andskotanum er ég !!! Þarna voru 2 hús við innkomuna í bæinn allt í góðu með það, en svo þegar við komum að heimavistinni þá hugsaði ég þetta getur nú ekki verið staðurinn! Ég var ekki viss hvort ég væri á heimavist eða Guantanamo, þarna voru 3metra háar gaddagirðingar og 10 metra há vélbyssuhreiður eða eitthvað í þá átt og lögreglan að vakta svæðið. fyrsta nóttin var fín ég svaf vel og vaknaði en var einn í útlöndum lengst útí sveit! Svo geng ég fram í eldhús þá blasir við  Herbergisfélaginn en hann var 32 ára skosk kona sem talaði með svaklegum skota  hreim. næsta skref var að reyna að koma sér sem fyrst frá litla Guantanamo niður í bæ en það tók mig ekki nema rúman klukkutíma að koma mér niður í Oxford city , ég dreyf mig upp í skóla og bað um annað herbergi, því var reddað samstundis og ég flutti seinna um daginn á skólavistina, ég bað herbergisfélagann um að skutla mér á nýja staðinn um kvöldið og ég hélt að við ætluðum aldrei að vera komin loksins blasti nýja heimavistin við mér en hún er svo stutt frá skólanum að ég get líklega gengið í svefni í skólann. Og ég sem hélt að ég gæti hjólað frá hinum staðnum í skólann, Mér finnst frekar ólíklegt að Grindjánar hjóli í FS ! bjartsýnn !!
24. ágúst 2008 klukkan 11:09
Sverrir Örn Leifsson
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Hver er mađurinn

  • Nafn: Sverrir Örn Leifsson
  • Stađur: Keflavík
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Flugnemi
  • Hjúskaparstađa: Í sambandi
  • Um mig: Ég er 22ja ára Keflvíkingur sem er staddur í Kidlington í Oxfordskíri ađ leggja stund á flugnám. Ég er svo sannarlega búinn ađ gera Garđinn frćgann en ţađan er betri helmingurinn af mér komin, hún Inga Lára mín.

Auglýsing

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...